Kæri notandi
Allur póstur fer í gegnum ruslpóstssíu hjá Netheimum. Póstur sem er síaður út er geymdur í ákveðinn tíma og er aðgengilegur notendum á vefsvæðinu http://spam.netsel.is
Verið getur að póstur sem þú saknar hafi af einhverjum ástæðum lent í síunni.

Við fyrstu notkun þarf að skrá sig sem notanda (Skráning) - og berst þá tölvupóstur með lykilorði sem notandi notar við innskráningu á vefsvæðið.

Póstur sem þú finnur í ruslpóstsíunni og vilt fá sendan, skal merkja með því að haka í kassa fremst í línunni. Smella síðan á Send hnappinn neðst á síðunni.
Netfang sendanda pósts sem hleypt er í gegn með þessu hætti eru sett sjálfkrafa á svokallaðan hvítan lista og á ekki að lenda í síu notanda aftur.

Póstur sem þú vilt eyða skal merktur á sama hátt og smellt á hnappinn Delete neðst á síðunni.

Ef þú finnur ekki póstinn sem þú saknar í síunni, þá vinsamlega sendu okkur frekari upplýsingar, t.d. frá hvaða netfangi var sent, dagsetning osfrv. og við athugum málið nánar.

Innskráning

Netfang:
Lykilorð:
  
Skráning - Gleymt lykilorð